Vert’ekki feiminn

Ég heyri því oft haldið fram að ungt fólk í dag hafi hvorki skilning né áhuga á stjórnmálum. Jafnvel er því haldið fram að almennur áhugi á stjórnmálum sé nær hverfandi nú til dags. Ég get samt ekki tekið undir slík sjónarmið. Áhug fólks á stjórnmálum hefur alltaf verið misjafn og sumir veita þeim meiri athygli en aðrir. Það sama á við á meðal ungs fólks, sumir hafa brennandi áhuga á stjórnmálum nánast frá barnæsku á meðan aðrir fara að gefa þeim meiri gaum eftir því sem þeir verða eldri og þeir fara að taka eftir þeim áhrifum sem stjórnmál og stjórnmálamenn hafa á líf þeirra.

Ég þekki þetta af eigin reynslu, ég hafði ekki mikinn áhuga á því að taka þátt í stjórnmálum þegar ég var unglingur en eftir því sem ég varð eldri fór ég að hafa skoðanir á sífellt fleiri málefnum og að lokum byrjaði ég að leita fyrir mér í starfi stjórnmálaflokka. Ég var 22 ára þegar ég loks fann stjórnmálaflokk sem ég taldi mig eiga heima í.
En það eru margir ragir við að taka þessi fyrstu skref í átt að þátttöku í stjórnmálaflokki. Margir telja sig ekki hafa nægilega þekkingu til þess að taka þátt í stjórnmálum en gera sér ekki grein fyrir því að flest okkar taka þátt í umræðum um stjórnmál oftar en við gerum okkur grein fyrir. Þó svo að umræðuefnið fjalli ekki um stjórnmálaflokka eða stjórnmálamenn þá eru málefnin nátengd stjórnmálum dagsins í dag. Þegar við ræðum það hve hátt olíuverðið sé orðið eða skömmumst yfir löngum biðtíma á heilsugæslunni þá erum við að ræða málefni sem eru einnig hlutar hinnar pólitísku umræðu. Það er enginn sérfróður um allt sem tengist stjórnmálum en öll höfum við eitthvað fram að færa. Galdurinn er aðeins sá að taka fyrsta skrefið.

Þegar ég gekk til liðs við Unga jafnaðarmenn vissi ég lítið um stjórnmál og gat ekki rökrætt stefnur flokka eða málefni, en með því að fylgjast með umræðunni sem fór fram í kringum mig og ræða málin við aðra sem höfðu einnig áhuga á stjórnmálum lærði ég sífellt meir um þessi málefni sem ég taldi mig vita svo lítið um. Ég sá stax að Samfylkingin var sá flokkur sem ég gat helst samsvarað mig við og jafnaðarstefnan þar sem öllum er gefin jöfn tækifæri var sú stefna sem hitti beint í mark hjá mér. Og ég er svo sannarlega ekki einn um það enda tel ég að flestir Íslendingar séu jafnaðarmann inni við beinið þó svo að sumir vilji kalla það eitthvað annað.

Að starfa í ungliðareyfingu snýst ekki bara um að að ræða stjórnmál og halda fundi. Starfið býður líka upp á góðan félagsskap þar sem ungt fólk með líkar skoðanir hittist og ræðir málin auk þess sem fjöldinn allur af uppákomum og skemmtunum eru í boði. Allir sem hafa áhuga eru meira en velkomnir til þess að kíkja á okkur og gleðjast með okkur enda er lang skemmtilegast í Uj.
Á heimasíðu Ungra jafnaðarmanna, www.politik.is, er hægt að finna upplýsingar um félög Uj og lesa um stefnu og áherslur Ungra jafnaðarmanna. Þeir sem vilja skrá sig í Unga jafnaðarmenn geta farið á heimasíðuna okkar og skráð sig þar auk þess sem á síðunni eru ýmsar gagnlegar upplýsingar og áhugaverðar greinar þar sem lesa má meira um stefnur og skoðanir Ungra jafnaðarmanna.

Að lokum hvet ég alla þá sem langar að taka þátt í starfinu með okkur eða eru bara forvitnir til þess að hafa samband eða mæta næst þegar Ungir jafnaðarmenn gera einhvað sniðugt.

Hilmar Kristinsson, formaður Ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum.

Greinin birtist fyrst í málgangi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.