Þá er heimasíðuna komin í loftið. Ég ákvað í samræmi við þá stefnu mína að halda öllum kostnaði í lágmarki að kaupa ekki sérstakt lén fyrir síðuna heldur keyri ég hana bara á wordpress slóðinni. Það verður bara að duga enda er engin glóra í því fyrir mann sem er enn að borga námslána yfirdráttinn að leggja í kostnað vegna heimasíðu léns.
Enn er helst að finna upplýsingar um mig hér á síðunni og gamlar greinar sem ég átti en meira efni bætist við þegar ég kem heim af framboðsfundinum á Selfossi sem verðu nú í kvöld klukkan átta.
Vegna þess að ég komst ekki til Vestmannaeyja eða á Höfn þá verður þessi fundur á Selfossi fyrsti stóri framboðsfundurinn sem ég tala á þannig að það er betra að vita hvað á að segja. Ég vona bara að það gangi vel og hlakka til að takast á við þetta verkefni.