Að loknum framboðsfundi á Selfossi

Það er gott að vera kominn heim eftir góðan framboðsfund á Selfossi. Það er ekki laust við að það taki á að sitja svona framboðsfund þar sem þrettán frambjóðendur tala. Ég var frekar aftarlega í röð ræðumanna í byrjun og á eftir sitjandi þingmanni og fyrrverandi ráðherra í röðinni. Ég var ekki alveg laus við spennu en ég er þó ekki frá því að mér hafi tekist vel með ræðuna mína sem ég hnipaði niður í litla stílabók í bílnum á leiðinni.

Fundurinn tókst vel en var í lengra lagi enda tekur það sinn tíma fyrir þrettán frambjóðendur að svara spurningum úr sal. Ég er þó ekki frá því að ég sé hlynntari því að allir svari nokkurm spurningum vegna þess að annars er hætt við að sumir framjóðendur verði útundan ef engum spurningm er beint að þeim.

Ég var ánægður með alla frambjóðendur og það fer ekki milli mála að hópurinn er sterkur og allir mjög frambærilegir.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.