Þá er framboðsfundunum lokið og ég er ekki frá því að þeir hafi tekist vel. Fundurinn í Grindavík í dag var góður og það var sérstaklega fróðlegt að fá að vita hvað væri á döfinni í Grindavík
Ég vissi t.d. ekki að snuðra væri hlaupinn á þráðinn varðandi nýjan framhaldskóla í Grindavík. Satt best að segja hélt ég að málið væri í höfn og að skólahald myndi hefjast næsta haust. Það er því augljóst að þrýsta þarf á nýjan menntamálaráðherra að leiða málið til enda. Sérstaklega í ljósi þess að Grindvíkingar eru meira að segja búnir að útveg húsnæði og allt virðist vera tilbúið nema hvað það vantar grænt ljós frá ráðherra.
Fundurinn gekk ágætlega af hálfu frambjóðenda en ég var eitthvað óöruggur þegar ég talaði og mig vantaði litlu stílabókina mína. Það er nefnilega svo þægilegt að skrifa niður það sem ég ætla að segja, þó ekki sé nema til þess að skipuleggja röð þess sem ég ætla að segja. Ég missti aðeins þráðinn og það sannaðist að maður þarf að vita hvað á að segja áður en farið er upp. En ég held að þetta hafi sloppið fyrir horn.
Fundurinn á Ránni gekk hins vegar mjög vel líkt og á Selfossi í gær. Að vísu var tíminn aðeins minni þannig að ég þurfti meira að líta á blaðið til þess að geta komist hratt í gegnum það sem ég ætlaði að segja. Í þetta sinn urðu fundargestir að beina spurningum á aðeins einn frambjóðenda og það þarf ekki að spyrja að því að ég fékk ekki neina spurningu. En í lokin fengu allir að tjá sig um nokkrar spurningar sem komu í lokin og ég held að ég hafi komist nokkuð skammlaust frá því.
Nú er bara að vona hið besta og ég vona að þátttaka í netprófkjörinu verði með miklum ágætum og að niðurstaðan verði sterkur listi sem Samfylkingin getur stolt farið með fram í kosningabaráttu.
Og miðað við frammistöðu frambjóðenda á fundunum í gær og í dag þar sem allir voru mætti þá er ég sannfærður um það að hvergi sé að finna veikan hlekk og hver og einn frambjóðandi muni geta sómað sér vel í framvarðasveit Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.