Ég fékk góða og ítarlega spurningu í athugasemdakerfið hér á síðunni og læt svarið mitt við henni birtast hér á forsíðunni.
Ég hvet alla þá sem vilja spyrja mig að einhverju varðandi mig eða áherslur mínar að senda mér póst eða skrifa spurninguna í athugasemdakerfið hér á síðunni.
Spurninguna má sjá hér: http://hilmarkr.wordpress.com/um-mig/#comment-2
Þar var spurt um álit mitt á ýmsum málum tengdum nýsköpun, rannsóknum og menntun.
Efling sprota- og nýsköpunnar hefur lengi verið áhugamál mitt þegar kemur að nýjungum í atvinnu. Ég tel lík að að slík fyrirtæki geti mörg hver stafað hvar á landinu sem er og því tel ég þetta einnig vera byggðamál. Vissulega þurfa mörg þekkingar fyrirtæki að starfa í nánd við háskóla en mörg önnur eru ekki háð samstarfi við menntastofnanir og geta því starfað hvar sem er á landinu.
Ég læt svarið mitt fylgja hér með og það má einnig sjá hér: http://hilmarkr.wordpress.com/um-mig/#comment-3
Sæll Valdimar
Ég get svarað þessum spurningum þínum á þann veg að þetta eru málefni sem mér líst mjög vel á. Nýsköpun og áhersla á uppbyggingu þekkingariðnaðar eru það sem ég tel muni leiða okkur á rétta braut á ný.
Fræðla er þar grundvallar atriði og nýjar aðferðir og leitun nýrra lausna í samstarfi við menntasamfélagið mun opna okkur nýjar víddir í atvinnusköpun og bæta samkeppnisstöðu okkar í hinum hnattræna heim.
Ég hef löngum litið til þess hvernig Finnar umbreyttu atvinnuháttum sínum úr frumframleiðslu þjóðfélagi yfir í það að leggja áherslu á tækni og nýsköpun með því að byggja upp þekkingarþorp í samtarfi við háskóla og aðrar menntastofnanir. Þeir réðust í þá vinnu eftir að hafa sjálfir upplifað bankahrun og efnahagserfiðleika vegna þess að þeir misstu útflutnings markaði sína.
Í dag eru það sprota og þekkingarfyrirtækin sem geta helst komið atvinnulífi okkar aftur af stað. Á meðan hinar hefðbundnari atvinnuvegir standa fastir þá eru það litlu nýsköpunarfyrirtækin sem eiga færi á því að vaxa og dafna. En til þess þurfa þau aðstoð og við þurfum að hlúa að þeim og tryggja það að þau geti rekið sig.
Ég vinn sjálfur hjá sprota- og þekkingar fyrirtæki sem hefu vaxið og dafnað á sama tíma og bankarnir hrundu og hjól atvinnulýfsins hökta. Ég hef því sjálfu upplifað hvaða möguleikar eru fyrir hendi og hvernig hægt er að nýta þetta marg umtalaða hugvit sem við Íslendingar eigum til.
Hugmyndir þínar eru spennandi Valdimar og ég mundi gjarnan vilja fá að kynnast þeim nánar.
Bestu kveðjur,
Hilmar Kristinsson